Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 12. ágúst 2017 18:47
Arnar Daði Arnarsson
Briem: Menn voru ekkert að láta grípa sig í bólinu
Hafsteinn Briem gat ekki verið með í dag vegna meiðsla.
Hafsteinn Briem gat ekki verið með í dag vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafsteinn Briem, leikmaður ÍBV þurfti að horfa á liðsfélaga sína landa sigri gegn FH í úrslitum bikarsins úr stúkunni vegna meiðsla.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  0 FH

„Þetta er öðruvísi en ég held að þetta sé samt alveg jafn sætt. Að sjá strákana leggja sig svona mikið fram og halda þetta út, það er alveg magnað," sagði Briem sem var ánægður með fyrri hálfleikinn.

„Fyrri hálfleikurinn var frábær og síðan náðu þeir að halda þessu í seinni hálfleik, þetta er frábært."

Haffi var ánægður með stuðninginn sem liðið fékk úr stúkunni.

„Hún var geggjuð. Ég fékk að taka þátt úr stúkunni og það er ógleymanlegt. Ég vil þakka öllum Eyjamönnum sem komu og lönduðu þessu með okkur."

Briem var ánægður með samstöðuna í hópnum fyrir leiknum og sagði að liðið hafi ekki viljað upplifa vonbrigðin aftur, eftir tapið gegn Val í bikarúrslitunum í fyrra.

„Menn voru ekkert að láta grípa sig í bólinu. Menn vissu að það hvernig er að tapa úrslitaleik eftir vonbrigðin í fyrra. Við vildum klára þetta núna og menn voru staðráðnir í að mæta almennilega til leiks."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner