Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. ágúst 2018 16:20
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Kaupmannahöfn lagði Bröndby í toppslagnum
Viktor Fischer skoraði þriðja markið.
Viktor Fischer skoraði þriðja markið.
Mynd: Getty Images
Kaupmannahöfn 3 - 1 Bröndby
1-0 Robert Skov ('35)
1-1 Ante Erceg ('51)
2-1 Nikolaj Thomsen ('77)
3-1 Viktor Fischer ('81)

Hjörtur Hermannsson sat allan tímann á bekknum er Bröndby tapaði fyrir Kaupmannahöfn í toppslag dönsku deildarinnar.

Robert Skov kom heimamönnum í Kaupmannahöfn yfir seint í fyrri hálfleik en Ante Erceg jafnaði snemma fyrir gestina snemma í þeim síðari.

Nikolaj Thomsen kom heimamönnum aftur yfir þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma og innsiglaði Viktor Fischer sigurinn skömmu síðar.

Kaupmannahöfn er með tveggja stiga forystu á Bröndby í toppbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner