mán 12. ágúst 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Azpilicueta kemur Abraham og Mount til varnar
Cesar Azpilicueta er reynslubolti.
Cesar Azpilicueta er reynslubolti.
Mynd: Getty Images
Cesar Azpilicueta, varnarmaður Chelsea, hefur komið ungu leikmönnunum Tammy Abraham og Mason Mount til varnar eftir 4-0 tapið gegn Manchester United í gær.

Tammy og Mason fengu gagnrýni eftir frammistöðu sína en þeir voru báðir í byrjunarliðinu.

„Við treystum þeim og þeir eru hér því þeir verðskulda að vera hér," sagði Azpilicueta.

„Þeir eru að berjast á öllum æfingum og núna er stórt tækifæri til að búa til stórkostlegan hóp. Allir hefðu viljað byrja tímabilið betur en við þurfum að læra af þessum leik og koma sterkari til baka."

„Við vorum mjög ósáttir við úrslitin því við stjórnuðum leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik, og sköpuðum mörg færi en við gátum ekki skorað."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner