Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 12. ágúst 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Henry Onyekuru á förum frá Everton án þess að spila
Mynd: Getty Images
Everton er að selja nígeríska kantmanninn Henry Onyekuru til Mónakó á tólf milljónir punda en samningar verða líklega í höfn í dag eða á morgun.

Henry er sjálfur mættur til Mónakó til að skrifa undir fimm ára samning.

Þessi 22 ára gamli leikmaður kom til Everton á átta milljónir punda fyrir tveimur árum en náði aldrei að spila með liðinu.

Vandræði voru með atvinnuleyfi fyrir Henry á Englandi og hann hefur undanfarin tvö tímabil verið á láni hjá Anderlecht og Galatasaray.

Á síðasta tímabili skoraði Henry sextán mörk og lagði upp sex þegar Galatasaray varð meistari í Tyrklandi.
Athugasemdir
banner
banner