Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mán 12. ágúst 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Inaki Williams gerir níu ára samning við Athletic Bilbao
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Inaki Williams hefur skrifað undir nýjan níu ára samning Athletic Bilbao.

Hinn 25 ára gamli Williams er nú samningsbundinn Athletic Bilbao til ársins 2028.

Stórlið í Evrópu hafa verið orðuð við Williams undanfarin ár og hann var meðal annars orðaður við Manchester United á dögunum.

Þessi öflugi leikmaður verður hins vegar áfram hjá Athletic Bilbao næstu árin en riftunarverðið í nýja samningnum hans hljóðar upp á 135 milljónir evra.

Um er að ræða einn lengsta samning sögunnar en hann toppar þó ekki samning Denilson sem gerði tíu ára samning við Real Betis árið 1998 þegar hann varð dýrasti leikmaður sögunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner