Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. ágúst 2019 19:45
Arnar Helgi Magnússon
Mangala að ganga í raðir Valencia
Mynd: Getty Images
Franski miðvörðurinn Eliaquim Mangala er við það að yfirgefa herbúðir Manchester City og ganga til liðs við spænska félagið Valencia.

Valencia borgar ekki krónu fyrir leikmanninn sem að gerir tveggja ára samning.

Mangala þekkir vel til hjá Valencia en hann lék með liðinu tímabilið 2016/17, þá á láni frá Manchester City. Miklar vonir voru bundnar við leikmanninn þegar hann gekk í raðir City frá Porto árið 2014 en hann hefur engan veginn náð sér á strik síðan þá.

Mangala hefði að öllum líkindum ekki fengið mörk tækifæri hjá Englandsmeisturunum á leiktíðinni sem að hófst nú um síðustu helgi.

Nú er verið að ganga frá öllum helstu pappírsmálum áður en að félagaskiptin verða kynnt.
Athugasemdir
banner
banner