Ivan Perisic er á leið til Bayern Munchen frá Inter Milan en hann stóðst læknisskoðun hjá þýska félaginu fyrr í dag.
Bayern mun borga 5 milljónir evra fyrir lánssamning og fá möguleikann á því að kaupa hann á 20 milljónir evra.
Svo virðist sem hinn þrítugi Perisic sé ekki í plönum Antonio Conte, stjóra Inter. Perisic hefur leikið með Inter frá 2015, en hann var sterklega orðaður við Manchester United á sínum tíma.
Bayern hefur titilvörn sína í Þýskalandi um næstu helgi á heimavelli gegn Hertha Berlín.
Fjölmiðlar náðu tali af Perisic þegar hann gekk rölti út úr höfuðstöðvum Bayern í dag þar sem að hann staðfesti að hann hefði lokið læknisskoðun og ætlaði að gera sitt besta fyrir félaigð.
Athugasemdir