Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. september 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Boateng hringdi í Mourinho til að hafna Man Utd
Mynd: Getty Images
Jerome Boateng, varnarmaður Bayern Munchen, hefur staðfest að hann hafi hafnað boði um að ganga í raðir Manchester United í sumar.

„Ég fékk fyrirspurnir frá PSG og Manchester United," sagði Botaeng.

„Mér líður vel hjá Bayern. Þetta er eitt stærsta félag í heimi," bætti Boateng en hann var upp með sér yfir áhuga frá United.

„Ég hringdi í Jose Mourinho og sagði honum að það væri heiður að þeir hefðu áhuga á mér og þakkaði honum fyrir að leggja svona hart að sér til að reyna að ná í mig."

„Ég útskýrði fyrir Jose að það sé erfitt að yfirgefa Bayern og ef ég geri það þá þurfi allt að vera til staðar til að toppa þetta félag."

Athugasemdir
banner
banner
banner