Segir að allt sé mögulegt í þessu einvígi
„1-0 tap er auðvitað svekkjandi því við förum alltaf í leikina til að vinna. En ég held að liðið hafi spilað gríðarlega sterkan og góðan varnarleik. Við vorum agaðar og þær áttu ekki auðvelt með að brjótast í gegnum okkur. Við getum gengið stoltar frá þessum leik held ég," sagði fyrirliði Þórs/KA, Sandra María Jessen eftir leikinn gegn Wolfsburg í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 0 - 1 VfL Wolfsburg
„Við áttum eitt gott færi í fyrri hálfleik þar sem Sandra skaut rétt framhjá og svo í lokin, skotin í samskeytin. Það er ekki eins og við höfum ekki átt breik í þennan leik og það er gaman að við komum þeim á óvart. Þetta sýnir okkur sjálfum að það er allt mögulegt og við ætlum að gera betur í næsta leik."
Hún var meira í hlutverki varnarmanns í dag, en ekki sóknarmanns eins og venjulega.
„Þetta var öðruvísi verkefni en vanalega. Þetta var rosalega skemmtilegt, ég fékk að vera á miðjunni í dag og það er nýtt fyrir mér og ég held að allir leikmenn hafi leyst þetta þokkalega vel og megi ganga sáttir frá þessu í dag. Við kannski lágum aftar í dag en við gerum venjulega, en það er gott að við kunnum það líka.
Athugasemdir