Fotbolti.net
12.09.19 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Eins og fyrir Liverpool að missa Van Dijk

Aymeric Laporte verður lengi frá.

Aymeric Laporte verður lengi frá.

Canon

Mynd: Getty Images

Jermaine Jenas, sérfræðingur BBC, segir að Liverpool sé sigurstranglegast í baráttunni um enska meistaratitilinn eftir að varnarmaðurinn Aymeric Laporte hjá Manchester City var borinn af velli á börum í sigrinum gegn Brighton þann 31. ágúst.

Laporte er meiddur á hné og verður frá til áramóta. Hann missir þá af fimmtán úrvalsdeildarleikjum hjá City og allri riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Chris Sutton, annar sérfræðingur hjá BBC, segir að City hafi þarna misst einn sinn allra mikilvægasta leikmann á meiðsalistann.

„Laporte er skylmingakappinn í vörn Ciity, leiðtogi og besti varnarmaðurinn. Það verður áhugavert að sjá hvernig City mun vegna án hans. Hann er það fyrir City sem Van Dijk er fyrir Liverpool. Hann kemur með stöðugleika í gegnum liðið," segir Sutton.

„Að missa Laporte hefur áhrif á dínamíkina í allri varnarlínunni og hann verður stór missir."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.