Íslenski U-21 árs landsliðsmaðurinn Mikael Anderson framlengdi í dag samning sinn við FC Midtjylland í Danmörku.
Samningurinn sem Mikael skrifaði undir gildir til ársins 2024.
Mikael hefur verið á láni frá FC Midtjylland síðustu tvö tímabil, 2017-2018 lék hann með Vendsyssel í Danmörku og á síðasta tímabili lék hann í Hollandi með Excelsior.
Hann hefur farið vel af stað með Midtjylland á þessu tímabili og er nú verðlaunaður með nýjum samningi.
Mikael var í íslenska U-21 árs hópnum sem mætti Lúxemborg og Armeníu fyrr í þessum mánuði.
Fótbolti.net ræddi við Mikael um gengið í Danmörk á dögunum.
Smelltu hér til að sjá viðtalið
Athugasemdir