Umboðsmaður Kasper Dolberg segir Napoli ekki eiga efni á sóknarmanninum sem er metinn á meira en 30 milljónir evra af Ajax.
Dolberg er danskur sóknarmaður sem varð 21 árs í síðustu viku og hefur gert 24 mörk í 55 deildarleikjum fyrir Ajax undanfarin tvö ár.
Napoli hefur sýnt framherjanum unga mikinn áhuga en Jens Steffensen, umboðsmaður Dolberg, efast um að ítalska félagið tími að kaupa hann.
„Skjólstæðingur minn hefur lengi verið orðaður við Napoli en þetta eru ekki félagaskipti sem ítalska félagið getur leyft sér," sagði Steffensen við Radio Marte.
„Hann er meira en 30 milljón evra virði, sem er alltof hátt kaupverð að mati Napoli. "
Athugasemdir