Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 12. október 2021 19:02
Brynjar Ingi Erluson
Ásgerður Stefanía framlengir við Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir framlengdi í dag samning sinn við Íslandsmeistaralið Vals út næsta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.

Adda, sem er 34 ára gömul, gekk til liðs við Val frá Stjörnunni árið 2019 og hefur verið mikilvægur hlekkur bæði sem leikmaður og í þjálfarateymi liðsins.

Hún hefur spilað 36 leik í deild- og bikar fyrir Val og getur haldið áfram að bæta leikjum í safnið en hún framlengdi samning sinn við félagið um eitt ár í dag.

Adda á 314 leiki í deild- og bikar á ferlinum og skorað 37 mörk. Hún ólst upp hjá Breiðabliki áður en hún samdi við Stjörnuna árið 2005.

Þar spilaði hún í fjórtán ár, með stuttu stoppi hjá sænska liðinu Kristianstads árið 2015, áður en hún gekk í raðir Vals árið 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner