Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 12. október 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Dembele og Aguero að verða klárir
Sergio Aguero.
Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele og Sergio Aguero eru mættir aftur til æfinga á fullum krafti hjá Barcelona eftir meiðsli.

Þessir sóknarleikmenn hafa ekki spilað fyrir Ronald Koeman á þessu tímabili en eru nú loks að yfirgefa meiðslalistann.

Dembele, sem er 24 ára, fór fyrr úr herbúðum franska landsliðsins á EM í sumar vegna þess að hann þurfti að gangast undir aðgerð.

Reynsluboltinn Aguero hefur ekki spilað fyrir Barcelona síðan hann kom á frjálsri sölu frá Manchester City í júní.

Aguero, sem er 33 ára, gæti spilað gegn Valencia um komandi helgi. Dembele verður frá í um tvær vikur til viðbótar áður en hann getur snúið aftur á keppnisvöllinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner