Íslenska landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir átti fínasta leik í vörninni í 4-1 tapinu fyrir Portúgal í umspilsleik fyrir HM í gær.
Glódís hefur verið ein sú besta í liði Íslands síðustu ár og þá verið að skapa sér frábæran feril með félagsliði sínu Bayern München.
Hún varðist gríðarlega vel gegn Portúgölum í gær og þegar íslenska liðið lenti undir í upphafi síðari hálfleiks sýndi hún rosalegan karakter og jafnaði metin með góðum skalla nokkrum mínútum síðar.
Glódís átti hörkutæklingar og kom liðinu til bjargar undir lok venjulegs leiktíma.
Það er jafnvel velt því fyrir sér á Twitter af hverju Glódís sé bara með 81 í einkunn í tölvuleiknum FIFA 23. Það er svosem ágætis einkunn fyrir varnarmann en hún á klárlega skilið að vera með hærri einkunn, það er klárt.
Glódis Viggósdóttir having only 81 rating in FIFA 23 is a CRIME
— Livia 🔴⚪️ (@liviamanke_) October 11, 2022


