Fotbolti.net
12.10.22 - 23:56
Brynjar Ingi Erluson

Martial ekki með Man Utd á morgun - Reynir að ná leiknum gegn Newcastle

Anthony Martial hefur verið frábær en meiðsli hafa sett strik í reikninginn

Anthony Martial hefur verið frábær en meiðsli hafa sett strik í reikninginn

Canon

Mynd: EPA

Anthony Martial, framherji Manchester United, verður fjarri góðu gamni á morgun er liðið mætir Omonia Nicosia í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Frakkinn hefur spilað frábærlega það sem af er tímabili eða það er að segja þegar hann er heill.

Hann hefur aðeins spilað fjóra leiki á tímabilinu, skorað þrjú mörk og lagt upp tvö, en hann hefur misst af níu leikjum liðsins og verður sá tíundi á morgun.

Martial fór meiddur af velli eftir hálftíma í 2-1 sigrinum á Everton síðustu helgi og er hann ekki orðinn leikfær fyrir leikinn gegn Nicosia á morgun.

Framherjinn vonast til þess að vera klár fyrir leik Man Utd gegn Newcastle á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.