Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 12. október 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Napoli getur tryggt sig í 16-liða úrslit
Napoli hefur unnið alla leiki sína í A-riðli og getur tryggt sæti sitt með sigri í kvöld
Napoli hefur unnið alla leiki sína í A-riðli og getur tryggt sæti sitt með sigri í kvöld
Mynd: EPA
Ítalska liðið Napoli getur með sigri á Ajax í kvöld tryggt sig í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Fjórða umferðin í riðlakeppni Meistaradeildarinnar klárast í kvöld með átta leikjum.

Napoli fær Ajax í heimsókn á Diego Maradona-leikvanginn á meðan Rangers spilar við Liverpool í A-riðli. Liverpool getur einnig farið langleiðina með að tryggja sæti sitt með sigri.

Barcelona og Inter eigast við í C-riðli á meðan Bayern heimsækir Plzen.

Tottenham Hotspur spilar við Eintracht Frankfurt, en fyrri leikur þessara liða endaði með jafntefli.

Leikir dagsins:

A-riðill
16:45 Napoli - Ajax
19:00 Rangers - Liverpool

B-riðill
16:45 Atletico Madrid - Club Brugge
19:00 Leverkusen - Porto

C-riðill
19:00 Barcelona - Inter
19:00 Plzen - Bayern

D-deild
19:00 Tottenham - Eintracht Frankfurt
19:00 Sporting - Marseille
Slapp
banner