Þrátt fyrir 4-1 sigurinn gegn Íslandi þá nægir það Portúgal ekki til að fá beint sæti á HM kvenna sem fram fer á næsta ári. Nokkrir umspilsleikir fóru fram í gær og Sviss og Írland tryggðu sér beint sæti á heimsmeistaramótinu.
Þar sem Portúgal er lægst skrifað af þessum þremur liðum þarf liðið að fara í gegnum lokahindrun og spila í öðru umspili sem fram fer í febrúar á næsta ári.
Hefði Ísland hinsvegar unnið, í venjulegum leiktíma eða framlengingu, þá hefðu okkar stelpur tryggt sér beint sæti á HM og sloppið við hitt umspilið.

Tíu lið berjast um þrjú laus sæti
Það eru þrjú sæti laus á HM sem fram fer í Nýja-Sjálandi og Ástralíu næsta sumar. Portúgal verður meðal tíu liða sem berjast um þessi lausu sæti í umspili í Nýja-Sjálandi í febrúar.
Liðunum verður skipt upp í þrjá riðla, tvo þriggja liða riðla og einn fjögurra liða. Leikin verður útsláttarkeppni og í þriggja liða riðlunum fer hæst skrifaða liðið beint í úrslitaleik og mætir sigurvegurunum í viðureign hinna liðanna.
Í þessu umspili verða Kínverska Taípei, Tæland, Kamerún, Senegal, Haítí, Panama, Síle, Paragvæ og Papúa-Nýja-Gínea.
Hvaða Evrópulönd verða á HM?
Eins og áður sagði þá hafa Sviss og Írland tryggt sér sæti á HM. Evrópumeistarar Englands voru meðal þeirra liða sem unnu riðil sinn í undankeppninni. Holland vann riðilinn sem Ísland var í.
Noregur, Þýskaland, Frakkland, Danmörk, Spánn og Ítalía unnu líka sína riðla og tryggðu sér beint á HM. Nú er spurning hvort portúgalska liðið bætist í þennan hóp.