Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 12. nóvember 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Man City fékk vináttuleiki fyrir grannaslaginn
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóra Manchester United, var ekki skemmt eftir 3-1 tapið gegn Manchester City í grannaslag í gær. Í viðtali við BBC eftir leik sagði Mourinho að Manchester City hafi fengið mun auðveldari leiki í aðdraganda grannaslagsins.

Portúgalinn kallaði leikina sem Manchester City spilaði í vikunni vináttuleiki.

„Þetta eru þung úrslit fyrir lið sem átti þrjá útileiki í sömu vikunni. Við spiluðum mjög krefjandi leik gegn Juventus en andstæðingurinn átti tvo vináttuleiki á heimavelli gegn Southamton og Shakhtar," sagði Mourinho eftir leik.

„Líkamleg og andleg þreyta leiddi til mistaka hjá okkur. Strákarnir voru þreyttir líkamlega og andlega. Þú verður að spila fótbolta eða aðra íþrótt í hæsta gæðaflokki til að vita hvað það er."

Sjá einnig:
Mourinho pirraður yfir spurningu: Held við föllum ekki
Athugasemdir
banner
banner
banner