Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. nóvember 2018 08:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho pirraður yfir spurningu: Held við föllum ekki
Ekki skemmt.
Ekki skemmt.
Mynd: Getty Images
Eftir 3-1 tap Manchester United gegn nágrönnum sínum í Manchester City í gær er United með neikvæða markatölu í áttunda sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir tólf umferðir er United jafn langt frá toppliði City og Cardiff sem situr í fallsæti. Jose Mourinho, stjóri United, var pirraður þegar hann var spurður út í þessa tölfræði eftir leik í gær.

„Ég held að við föllum ekki," sagði Mourinho aðspurður út í stöðuna eftir leik.

„Þegar ég skoða leikinn í dag þá getið þið farið í tölfræðina ef þið viljið. Það er það sem fólk sem skilur ekki fótbolta gerir til að greina fótboltaleiki, það skoðar tölfræði."

„Ég skoða ekki tölfræðina. Ég skoða hvað mér fannst og hvað ég sá í leiknum. Í dag (í gær) var leikurinn opin fram á áttugustu og eitthvað mínútu."

„Ég lít á frammistöðuna hjá liði mínu sem frammistöðu með mistökum. Það er öðruvísi en slök frammistaða. Slæm frammistaða er eitt en frammistaða með mistökum er annað."

„Við gerðum mistök og okkur var refsað fyrir þessi mistök. Frammistaðan, hugarfarið, samheldnin, trúin og baráttan til enda var eitthvað sem við getum byggt ofan á. Við missum það ekki þó við höfum tapað."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner