Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 12. nóvember 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Nasri í læknisskoðun hjá West Ham
Mynd: Getty Images
Samir Nasri er mættur í læknisskoðun hjá West Ham samkvæmt frétt Sky Sports í dag.

Hinn 31 árs gamli Nasri hefur verið að afplána eins og hálfs árs bann sem hann var dæmdur í fyrir að brjóta lyfjareglur.

Nasri má byrja að spila aftur um áramót og hann er að ganga frá stuttum samningi við West Ham.

Manuel Pellegrini, stjóri Hamranna, þekkir Nasri vel en þeir félagar urðu enskir meistarar saman hjá Manchester City.

Nasri var síðast á mála hjá Antalyaspor í Tyrklandi en nú er hann á leið aftur í enska boltann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner