Paul Pogba og Anthony Martial hafa dregið sig úr franska landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Hollandi og Úrúgvæ vegna meiðsla.
Pogba meiddist á læri gegn Juventus í síðustu viku og var ekki með í grannaslagnum gegn Manchester City í gær.
Martial spilaði leikinn í gær en hann hefur nú dregið sig úr hópnum vegna meiðsla.
Pogba meiddist á læri gegn Juventus í síðustu viku og var ekki með í grannaslagnum gegn Manchester City í gær.
Martial spilaði leikinn í gær en hann hefur nú dregið sig úr hópnum vegna meiðsla.
Alexandre Lacazette framherji Arsenal átti að koma inn í hópinn fyrir Martial en hann getur ekki tekið boðinu sjálfur vegna meiðsla.
Moussa Sissoko miðjumaður Tottenham kemur inn fyrir Pogba.
Athugasemdir