Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 12. nóvember 2018 22:17
Fótbolti.net
Sjáðu markið: Fullkomin aukaspyrna Depay
Memphis Depay skoraði tvö og lagði upp tvö í sigri Lyon
Memphis Depay skoraði tvö og lagði upp tvö í sigri Lyon
Mynd: Getty Images
Memphis Depay, leikmaður Lyon í Frakklandi, er óstöðvandi þessa dagana. Honum virðist líða vel í Lyon en hann skoraði tvö og lagði upp tvö í 4-2 sigri Lyon á Guingamp á laugardag.

Í 17 leikjum sínum fyrir Lyon á þessu tímabili er hann kominn með 6 mörk og 6 stoðsendingar en hann hefur verið frábær frá því hann frá Manchester United fyrir næstum tveimur árum síðan.

Hann skoraði magnað aukaspyrnumark gegn Guingamp um helgina en hann birti sjálfur myndband af því á Twitter.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan. Hann skrifar undir færsluna Bend it like og vísar hann þar í David Beckham, fyrrum leikmann Manchester United og enska landsliðsins.



Athugasemdir
banner