Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 12. nóvember 2018 14:37
Magnús Már Einarsson
Solari stýrir Real Madrid út tímablilið
Santiago Solari.
Santiago Solari.
Mynd: Getty Images
Santiago Solari verður áfram þjálfari Real Madrid út tímabilið samkvæmt fréttum frá Spáni í dag.

Solari var áður þjálfari varaliðs Real Madrid auk þess sem hann hefur þjálfað unglingalið félagsins.

Solari var settur tímabundið í þjálfarastólinn eftir að Julen Lopetegui var rekinn fyrir tveimur vikum.

Undir stjórn Solari hefur Real Madrid unnið fjóra leiki í röð og Argentínumaðurinn fær nú að halda starfinu út tímabilið.

Hinn 42 ára gamli Solari spilaði sjálfur með Real Madrid frá 2000 til 2005.
Athugasemdir
banner
banner