Fotbolti.net
12.11.19 - 14:39
Elvar Geir Magnússon

Of heitt fyrir Jón Daða - „Ég get aldrei vanist þessu"

Auglýsing
Of heitt fyrir Jón Daða - „Ég get aldrei vanist þessu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Eins og fram hefur komið er íslenska landsliðið við æfingar og undirbúning í Antalya í Tyrklandi áður en haldið verður til Istanbúl þar sem leikið verður gegn heimamönnum.

Antalya er gríðarlega sólríkur staður og það var mikill hiti á æfingunni í dag.

Sóknarmaðurinn Jón Daði Böðvarsson segir að hitinn hafi verið of mikill fyrir sinn smekk.

„Ég get aldrei vanist þessu, það var of heitt fyrir mig. En það er gaman að hittast aftur og gera sig klára í alvöru leik," segir Jón Daði sem segir að allur aðbúnaður sé fyrsta flokks. „Þetta er æðislegt, hótelið er frábært og svæðið bara æðislegt."
Hér að ofan má sjá glænýtt viðtal við Jón Daða þar sem hann talar um komandi leik gegn Tyrkjum og lífið í Millwall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.