Lewis-Skelly á blaði fjögurra félaga - Mörg stórlið vilja ungstirni Hertha Berlin - Casemiro gæti fengið nýjan samning - Toney til Englands?
   mið 12. nóvember 2025 13:40
Elvar Geir Magnússon
Bakú
Mikael ekki með í landsleikjunum - Logi lasinn
Mikael Anderson verður ekki með Íslandi í komandi landsleikjum.
Mikael Anderson verður ekki með Íslandi í komandi landsleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikael Anderson verður ekki með Íslandi í landsleikjunum framundan gegn Aserbaísjan og Úkraínu.

Þetta kom fram á fréttamannafundi í Bakú þar sem Arnar Gunnlaugsson sat fyrir svörum.

Mikael, sem spilar fyrir Djurgarden, fór í myndatöku í Svíþjóð og KSÍ fékk þær upplýsingar í dag að hann gæti ekki verið með í leikjunum mikilvægu.

Arnar segir mögulegt að leikmaður verði kallaður inn í hópinn í stað Mikaels en það sé í skoðun.

Þá kom fram á fundinum að Logi Tómasson hefur verið að glíma við veikindi en vonast sé til þess að hann geti spilað.

Ísland þarf sigur í Bakú til að vera öruggt með úrslitaleik gegn Úkraínu í lokaumferðinni á sunnudag, um sæti í umspilinu. Ef Úkraína tapar gegn Frakklandi mun Íslandi þá nægja jafntefli í þeim leik.

Landslið karla - HM 2026
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Frakkland 4 3 1 0 9 - 3 +6 10
2.    Úkraína 4 2 1 1 8 - 7 +1 7
3.    Ísland 4 1 1 2 11 - 9 +2 4
4.    Aserbaísjan 4 0 1 3 2 - 11 -9 1
Athugasemdir
banner