ÍR og Leiknir R. mætast í minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson í Egilshöll í kvöld klukkan 19:00.
Hlynur Þór var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði bæði knattspyrnu hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum sjálfboðastörfum innan félagsins.
Hann gerði ekki einungis marga frábæra hluti í þágu félagsins heldur var hann einnig virkur í félagslífi og duglegur námsmaður.
Undanfarin ár hafa ÍR og Leiknir mæst árlega í minningarleik um Hlyn.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00 í Egilshöll en eftir leik verða kaffi og jólakökur á boðstólnum.
Smelltu hér til að sjá viðburðinn á Facebook
Athugasemdir