Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 12. desember 2018 11:03
Magnús Már Einarsson
Ísland mætir Svíþjóð og Kúveit í Katar
Icelandair
Erik Hamren fær að skoða nýja leikmenn í janúar.
Erik Hamren fær að skoða nýja leikmenn í janúar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
A landslið karla mætir Svíþjóð og Kúveit í Katar í vináttuleikjum í dag en þetta staðfesti KSÍ í dag.

Leikið verður gegn Svíþjóð 11. janúar og gegn Kúveit 15. janúar.

Ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða og því er ljóst að margir fastamenn verða fjarri góðu gamni í íslenska liðinu.

Um er að ræða síðustu leiki íslenska landsliðsins áður en undankeppni EM hefst í mars.

Ísland fór til Katar í nóvember í fyrra til að spila æfingaleiki en þá var Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari. Heimir var í vikunni ráðinn þjálfari Al Arabi í Katar.
Athugasemdir
banner
banner
banner