Arnór Sigurðsson átti stórleik er CSKA Moskva lagði Real Madrid að velli á Santiago Bernabeu í Meistaradeildinni fyrr í kvöld.
Arnór lagði fyrsta markið upp og skoraði það síðasta í 0-3 sigri sem nægði þó ekki til að tryggja þriðja sæti riðilsins.
Hörður Björgvin Magnússon átti einnig góðan leik í liði CSKA og ljóst að landsliðsmennirnir ungu eiga framtíðina fyrir sér.
Mark Arnórs er hægt að sjá með að smella hér.
Athugasemdir