Fotbolti.net
12.12.19 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Hasenhuttl: Bæting á frammistöðunni

Austurríkismaðurinn Ralph Hasenhuttl.

Austurríkismaðurinn Ralph Hasenhuttl.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton, sem er í þriðja neðsta sæti, hefur unnið tvo af síðustu þremur leikjum sínum og er nú aðeins einu stigi á eftir andstæðingum sínum næsta laugardag.

Southampton tekur á móti West Ham um helgina en Hamrarnir eru í 16. sæti.
„Í okkar stöðu er hver einasti leikur gríðarlega mikilvægur," segir Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton.

„Það er komið gott sjálfstraust í liðið og við teljum að við hefðum átt skilið að fá eitthvað úr leiknum gegn Newcastle (2-1 tap). Við fengum tækifæri á að taka eitthvað á erfiðum útivelli."

„Frammistaða okkar er að verða betri. Tvö góð úrslit á heimavelli hafa hjálpað gríðarlega og núna eigum við annan heimaleik."

Megum ekki glutra niður forystu
Danny Ings kom Southampton yfir gegn Newcastle á sunnudag en heimamenn unnu á endanum 2-1.

„Við höfum skoðað spilamennsku okkar eftir að við tókum forystuna. Við sýndum mikið hugrekki en hefðum átt að spila með öðrum hætti eftir að við komumst yfir," segir Hasenhuttl.

„Hluti af framþróun okkar er að koma í veg fyrir að við gefum stig frá okkur þegar við erum yfir í leikjum."

Pellegrini veit hvað þarf
Kollegi Hasenhuttl hjá West Ham, Manuel Pellegrini, er í heitu sæti og talað um að Hamrarnir gætu skipt um stjóra ef liðið tapar leiknum á laugardag.

„Ég tel hann vera magnaðan stjóra. Hann býr yfir mikilli reynslu og eins og hjá öllum þá koma kaflar þar sem gengið er ekki nægilega gott. Ég tel að hann viti hvað þurfi að gera því hann býr yfir mikilli reynslu," segir Hasenhuttl.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.