Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mán 12. desember 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fær ekki fleiri leiki á HM
Spænski dómarinn Mateu Lahoz mun ekki dæma fleiri leiki á heimsmeistaramótinu í Katar en þetta fullyrðir spænski miðillinn COPE.

Lahoz dæmdi leik Argentínu og Hollands í 8-liða úrslitum HM í Katar en hann lyfti gula spjaldinu fimmtán sinnum í leiknum og eru þeir Marcos Acuna og Gonzalo Montiel báðir í banni í undanúrslitunum.

Frammistaða Lahoz í leiknum var mikið rædd í fjölmiðlum og voru bæði lið afar ósátt með hann.

Argentínumenn voru sérstaklega háværir í fjölmiðlum eftir leik og sagði Lionel Messi, fyrirliði Argentínu, að alþjóðasamband FIFA gæti ekki sett Lahoz á leik af þessari stærðargráðu.

„FIFA þarf að taka á þessu. Þeir geta ekki sett svona dómara á svona mikilvægan leik af þessari stærðargráðu. Dómarinn verður að vera hæfur til að taka þessu verkefni,“ sagði Messi eftir leik en hann fékk ósk sína uppfyllta ef marka má COPE.

Lahoz hefur dæmt sinn síðasta leik á mótinu og er nú á leið aftur til Spánar.
Athugasemdir
banner
banner
banner