Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mán 12. desember 2022 13:30
Elvar Geir Magnússon
Króatía vann Argentínu 3-0 á síðasta HM - „Erum með ný vopn í vopnabúrinu núna“
Annað kvöld klukkan 19 leika Argentína og Króatía undanúrslitaleik á HM. Þessi lið voru með Íslandi í riðli á HM 2018 og Króatar unnu þá 3-0 sigur gegn Argentínumönnum.

Nicolas Tagliafico, leikmaður argentínska liðsins, var einnig með á mótinu 2018.

„Argentína er frábært lið. Í gær vorum við að skoða leikgreiningar á þeirra spilamennsku, þeir hafa frábæra leikmenn og mikil gæði á miðsvæðinu," segir Tagliafico.

„Það eru einhver líkindi frá 2018 en þetta verður allt öðruvísi leikur en þessi sem við spiluðum fyrir fjórum árum. Við erum með ný vopn og erum reynslunni ríkari frá síðasta leik."

Tagliafico var að sjálfsögðu spurður út í Lionel Messi?

„Hann er okkar fyrirliði, okkar leiðtogi. Hann er sá sem ýtir okkur áfram og hvetur. Með hann höfum við ákveðið forskot. Við leggjum allir mikið á okkur til að upplifa drauma okkar og við getum gert það með Messi við hlið okkar," segir Tagliafico.

Tagliafico mun taka byrjunarliðssæti í vinstri bakverði Argentínu á morgun þar sem Marcos Acuna er í leikbanni.
Athugasemdir
banner
banner
banner