Gareth Southgate landsliðsþjálfari Englands liggur undir feldi og metur kosti þess og galla að halda áfram starfi sínu. Hann segir að stór hluti af síðustu 18 mánuðum hafi reynst sér erfiður.
England féll úr leik á HM í Katar á laugardag með því að tapa 2-1 gegn Frakklandi.
England féll úr leik á HM í Katar á laugardag með því að tapa 2-1 gegn Frakklandi.
„Ég er óviss. Ég vil ekki vera í þeirri stöðu eftir fjóra eða fimm mánuði að finnast sem ég hafi tekið ranga ákvörðun. Þetta er of mikilvægt fyrir alla aðila til að taka ranga ákvörðun," segir Southgate.
Southgate var ráðinn í október 2016 og kom enska liðinu í undanúrslit á HM 2018 og úrslitaleik EM alls staðar. England féll hinsvegar úr A-deild Þjóðadeildarinnar og Southgate fékk mikla gagnrýni eftir 4-0 tap gegn Ungverjalandi í júní.
„Stór hluti af síðustu 18 mánuðum hefur verið erfiður," segir Southgate sem er samningsbundinn til desember 2024.
„Ég hef elskað starfið síðustu vikur en ég verð að horfa á stærra tímaskeið, hvað hefur verið sagt og hvað hefur verið skrifað. Það eru ýmsir árekstrar í hugsunum mínum núna og ég vil taka rétta ákvörðun og vera með orkuna til að takast á við það sem er framundan."
Southgate hefur unnið 49 af 81 leikjum sínum með stjórnartaumana hjá Englandi en samningur hans rennur út í desember 2024.
„Það eru miklar tilfinningar í spilinu og mikil orka farið í vinnuna. Ég mun ekki taka ákvörðun í dag, og líklega ekki heldur á allra næstu dögum," segir Southgate en nokkrir enskir fjölmiðlar telja að hann sé að gefa sterkar vísbendingar um að líklegasta niðurstaðan verði sú að hann láti af störfum.
Southgate hefur stuðning leikmannahóps Englands en Declan Rice og Harry Maguire hafa talað um það opinberlega að liðið vilji halda honum.
Þá hafa næstum allir af virtustu sparkspekingum Englands sagt að Southgate eigi að halda áfram. Alan Shearer segir hann eiga eftir óklárað verk og þeir Gary Neville, Ian Wright, Roy Keane, Martin Keown og Jermaine Jenas allir sagt að hann sé besti kosturinn í starfið.
Rio Ferdinand segir Southgate hafa gert mistök með skiptingum sínum gegn Frakklandi en bætti við að hann ætti hinsvegar að halda áfram því 'þessari sögu' sé ekki lokið.
Athugasemdir



