West Ham unnu öruggan 4-1 sigur á Brighton í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.
Staðan í hálfleik var jöfn 1-1 en í síðari hálfleik var Marko Arnautovic með sýningu. Hann kom West Ham yfir í 2-1 áður en hann lagði upp tvö mörk fyrir Manuel Lanzini.
Staðan í hálfleik var jöfn 1-1 en í síðari hálfleik var Marko Arnautovic með sýningu. Hann kom West Ham yfir í 2-1 áður en hann lagði upp tvö mörk fyrir Manuel Lanzini.
Arnautovic var hress að leikslokum og sagði frá því að Manuel Lanzini hefði verið að kvarta í honum vegna þess að hann leggði aldrei upp mörk fyrir hann.
Eftir að hafa lagt upp á hann tvö mörk mætti Lanzini nú þegja, að minnsta kosti fram að næsta leik. Brot úr viðtalinu við Arnautovic má sjá hér að neðan.
"Now I think he needs to be quiet..." 😂😂 pic.twitter.com/Lb7aDB7owy
— West Ham United (@WestHamUtd) January 13, 2018
Athugasemdir