lau 13. janúar 2018 21:00
Ingólfur Stefánsson
Pochettino: Kane getur bætt öll met deildarinnar
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino stjóri Tottenham var ánægður með spilamennsku sinna manna í 4-0 sigrinum á Everton.

„Þetta var frábær frammistaða hjá liðinu. Ég er virkilega ánægður. Það er mikilvægt að ná í 3 stig þar sem baráttan um fjórða sætið er mjög hörð."

Harry Kane skoraði 2 mörk í sigrinum og er nú markahæsti leikmaður Tottenham í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

„Harry er frábær, hann á allt það lof sem hann fær skilið. Með þessu áframhaldi mun hann bæta öll met ensku úrvalsdeildarinnar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner