Chelsea og Leicester gerðu markalaust jafntefli í dag. Claude Puel var sáttur með spilamennsku liðsins.
„Við spiluðum vel. Þegar uppi er staðið get ég ekki annað en verið sáttur með stigið eftir að hafa spilað 10 á móti 11. Við hefðum þó átt að vera búnir að skora."
„Við spiluðum vel. Þegar uppi er staðið get ég ekki annað en verið sáttur með stigið eftir að hafa spilað 10 á móti 11. Við hefðum þó átt að vera búnir að skora."
Puel fannst rauða spjaldið sem Ben Chilwell fékk að líta ódýrt.
„Þetta var harður dómur. Það er erfitt að kyngja því en við fengum stig úr leiknum."
Riyad Mahrez hefur verið orðaður burt frá liðinu í janúar glugganum. Puel segir að leikmanninum líði vel og það sé vilji fyrir því að hann verði áfram hjá Leicester.
„Það var hægt að sjá í dag að hann er að njóta sín á vellinum. Hann var frábær. Hann er ánægður hérna og að sjálfsögðu erum við ánægðir með hann. Það eru miklar vangaveltur í gangi en við viljum halda okkar besta leikmanni."
Athugasemdir