Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 13. janúar 2019 13:26
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Everton og Bournemouth: Gylfi í holunni
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem tekur á móti Bournemouth í fyrsta leik af tveimur á þessum fagra ofursunnudegi.

Gylfi er í holunni fyrir aftan Richarlison og er hann með Bernard með sér á vinstri kanti og Ademola Lookman á hægri, sem heldur Theo Walcott á bekknum.

Hinir öflugu Andre Gomes og Idrissa Gana Gueye sjá um miðjuna og er varnarlínan svipuð og áður, Yerry Mina er þó á bekknum.

Callum Wilson er ekki í leikmannahópi Bournemouth vegna meiðsla en hann er markahæsti maður liðsins á tímabilinu.

Joshua King stillir sér upp fremst í hans stað með Ryan Fraser og Junior Stanislas á köntunum. Nathaniel Clyne byrjar í stöðu hægri bakvarðar og sendir Charlie Daniels á bekkinn þar sem hann situr við hlið Jordon Ibe og Lys Mousset.

Liðin eru jöfn um miðja úrvalsdeild með 27 stig eftir 21 umferð, níu stigum frá fallsvæðinu.

Everton: Pickford, Coleman, Zouma, Keane, Digne, Gueye, Gomes, Sigurdsson, Lookman, Bernard, Richarlison.
Varamenn: Stekelenburg, Mina, Davies, Kenny, Walcott, Calvert-Lewin, Tosun.

Bournemouth: Begovic, Smith, Cook, Ake, Clyne, Gosling, Lerma, Brooks, Fraser, Stanislas, King.
Varamenn: Boruc, Surman, Mousset, Ibe, Daniels, Rico, Simpson.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner