Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. janúar 2019 16:13
Ívan Guðjón Baldursson
England: Everton hafði betur gegn Bournemouth
Mynd: Getty Images
Everton 2 - 0 Bournemouth
1-0 Kurt Zouma ('61)
2-0 Dominic Calvert-Lewin ('95)

Gylfi Þór Sigurðsson lék nánast allan leikinn er Everton fékk Bournemouth í heimsókn í fjörugum leik á Goodison Park.

Staðan var markalaus eftir skemmtilegan fyrri hálfleik þar sem bæði lið komust afar nálægt því að skora en inn vildi boltinn ekki.

Leikurinn hélt áfram að vera fjörugur eftir leikhlé en heimamenn voru hættulegri og komust yfir með skallamarki frá Kurt Zouma eftir góða fyrirgjöf frá Lucas Digne.

Varamaðurinn Dominic Calvert-Lewin tvöfaldaði forystu heimamanna á lokasekúndunum og gerði þannig endanlega út um leikinn.
Athugasemdir
banner
banner