Kári 2 - 3 Grótta
0-1 Kristófer Orri Pétursson ('10)
0-2 Pétur Theódór Árnason ('13)
1-2 Alexander Már Þorláksson ('30)
2-2 Aron Ýmir Pétursson ('37)
2-3 Pétur Theódór Árnason ('80)
0-1 Kristófer Orri Pétursson ('10)
0-2 Pétur Theódór Árnason ('13)
1-2 Alexander Már Þorláksson ('30)
2-2 Aron Ýmir Pétursson ('37)
2-3 Pétur Theódór Árnason ('80)
Grótta hafði betur gegn Kára í fyrsta leik dagsins hér á landi. Liðin mættust í riðli 2 í B-deild Fótbolta.net mótsins.
Leikið var í Akraneshöll og komust gestirnir frá Seltjarnarnesi tveimur mörkum yfir á fyrsta stundarfjórðungnum þökk sé mörkum frá Kristófer Orra Péturssyni og Pétri Theódóri Árnasyni.
Heimamenn ætluðu þó ekki að láta valta yfir sig og náðu Alexander Már Þorláksson og Aron Ýmir Pétursson að jafna fyrir leikhlé.
Síðari hálfleikurinn var spennandi en Seltirningar höfðu betur á endanum þegar Pétur Theódór skoraði sitt annað mark í leiknum á lokakaflanum.
Athugasemdir