Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. janúar 2019 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fulham að fá Babel lánaðan út tímabilið
Ryan Babel er gríðarlega reyndur.
Ryan Babel er gríðarlega reyndur.
Mynd: Getty Images
Hollenski kantmaðurinn Ryan Babel er á leið til Fulham þar sem hann mun spila út tímabilið.

Babel er 32 ára gamall og kemur á lánssamning frá tyrkneska stórveldinu Besiktas sem hefur ekki verið að gera sérlega góða hluti á tímabilinu.

Besiktas er að reyna að minnka launakostnaðinn hjá sér og er þetta lán hluti af því, en stuðningsmenn félagsins hafa snúist gegn Babel að undanförnu og vilja sjá hann fara burt.

Babel á að hjálpa Fulham í fallbaráttunni en hann hefur reynslu úr enska boltanum eftir að hafa verið leikmaður Liverpool í þrjú og hálft ár á sínum yngri árum.

Babel hefur gert 8 mörk í 54 landsleikjum fyrir Holland og mun berjast við menn á borð við Andre Schürrle og Lucas Vietto um byrjunarliðssæti.
Athugasemdir
banner
banner