Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 13. janúar 2019 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gattuso staðfestir að Higuain vill fara
Mynd: Getty Images
Gennaro Gattuso er svo gott sem búinn að staðfesta að Gonzalo Higuain ætli sér að yfirgefa AC Milan í janúarglugganum.

Chelsea hefur mikinn áhuga á Higuain sem er hjá Milan á nokkuð flóknum lánssamning frá Juventus.

Higuain spilaði fyrstu 112 mínúturnar er Milan lagði Sampdoria að velli með tveimur mörkum gegn engu í ítalska bikarnum í gær og sagði Gattuso eftir leik að sóknarmaðurinn vildi yfirgefa félagið.

„Við höfum spjallað mikið saman en ég get ekki látið hann skipta um skoðun. Ég skil ekki hvað hann er óánægður með, því honum líður vel á æfingum og er vinsæll meðal leikmanna," sagði Gattuso.

„Ef ég fengi að ráða öllu þá myndi ég bjóða honum heim til mín og læsa hann í herbergi. Ég myndi kasta mat inn til hans á tveggja eða þriggja tíma fresti, en því miður þá má ég það ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner