Torino 0 - 2 Fiorentina
0-1 Federico Chiesa ('87)
0-2 Federico Chiesa ('92)
0-1 Federico Chiesa ('87)
0-2 Federico Chiesa ('92)
Torino og Fiorentina áttust við í 16-liða úrslitum ítalska bikarsins í dag og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn og leiðinlegan fyrri hálfleik.
Heimamenn héldu boltanum vel innan liðsins en sköpuðu lítið af færum og áttu ekki eitt einasta skot sem hitti á rammann í leiknum.
Staðan var enn markalaus á 87. mínútu en þá tók Federico Chiesa, sonur Enrico, til sinna ráða og skoraði tvennu á fimm mínútum.
Bæði mörkin komu eftir skyndisóknir gestanna sem mæta annað hvort Roma eða Virtus Entella í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir