Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 13. janúar 2019 09:21
Elvar Geir Magnússon
Landsliðið keppti í spurningakeppni
Icelandair
Hafnfirðingarnir ásamt Birki Má.
Hafnfirðingarnir ásamt Birki Má.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Það var mikil spenna á hóteli íslenska landsliðsins í Doha í Katar í gærkvöldi þegar fram fór spurningakeppni.

Það voru fjölmörg stig í pottinum en Fótbolti.net sá um keppnina. Spurt var úr heimi fótboltans en stór hluti spurninganna hafði verið notaður í Pub Quizi Innkastsins sem á Ölveri.

Í flokki starfsmanna voru það Siggi dúlla og Dagur Sveinn Dagbjartsson sem stóðu uppi sem sigurvegarar.

En stigahæsta liðið var skipað Birki Má Sævarssyni, Böðvari Böðvarssyni og Kristjáni Flóka Finnbogasyni. Hlutu þeir hinn eftirsótta Aladdín-lampa fyrir sigurinn.

Frederik Schram og Hjörtur Hermannsson hlutu silfurverðlaun en bronsið fór til Eggerts Gunnþórs og Arnórs Smárasonar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner