Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 13. janúar 2019 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Messi og Fabregas kaupa hlut í FC Andorra
Mynd: Getty Images
Gerard Pique tók yfir FC Andorra rétt fyrir áramót og hafa vinir hans Cesc Fabregas og Lionel Messi keypt sig inn í félagið.

Andorra leikur í fimmtu deild spænska boltans en er langbesta liðið í heimalandinu og er heiti félagsins eftir því.

Kosmos, fyrirtæki Pique, tók yfir skuld félagsins sem hefur aldrei komist hærra heldur en í C-deildina eða í fjórðu umferð spænska konungsbikarsins.

Gabri Garcia og Albert Jorquera, fyrrverandi leikmenn Barcelona, eru þjálfarar félagsins og var Adria Vilanova, sonur Tito fyrrverandi þjálfara Barca, fenginn til að spila með þeim.

Þetta er ekki ósvipað kaupum leikmanna úr '92 árganginum hjá Manchester United á Salford City sem er í toppbaráttu ensku utandeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner