Tími Marko Arnautovic hjá West Ham virðist vera liðinn undir lok en austurríski framherjinn vill ólmur yfirgefa félagið sem fyrst.
Arnautovic hefur verið meðal bestu leikmanna Hamranna undanfarin tímabil og hafnaði félagið 35 milljón punda tilboði í hann frá kínversku félagi í síðustu viku.
„Allir innan félagsins vita að Marko vill fara. Hann er gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir félagið og stuðningsmenn elska hann en þetta er hans ákvörðun," sagði Michail Antonio, samherji Arnautovic.
„Hann er á þeim tímapunkti í lífinu þar sem hann vill byrja nýjan kafla og vinna titla. Félagið sem hefur áhuga á honum er eitt af þeim bestu í Kína."
Arnautovic, sem hefur skorað 20 mörk í 77 landsleikjum, verður þrítugur í apríl.
Athugasemdir