Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 13. janúar 2019 21:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Ceballos tryggði Real sigur á gömlu félögunum
Mynd: Getty Images
Betis 1 - 2 Real Madrid
0-1 Luka Modric ('13 )
1-1 Sergio Canales ('67 )
1-2 Dani Ceballos ('88 )

Dani Ceballos var hetja Real Madrid er liðið mætti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Gengi Real Madrid hefur ekki verið ásættanlegt á þessu tímabili en liðið komst yfir gegn Betis eftir 13 mínútur er Ballon d'Or verðlaunahafinn Luka Modric skoraði.

Staðan var 1-0 í hálfleik, en á 67. mínútu jafnaði Sergio Canales fyrir heimamenn í Betis.

Leikurinn virtist ætla að enda með jafntefli þangað til á 88. mínútu þegar varamaðurinn Dani Ceballos kom boltanum í netið. Ceballos er uppalinn hjá Betis og var þarna að skora gegn gömlu félögunum.

Lokatölur 2-1 og mikilvægur sigur Real Madrid staðreynd. Real er í fjórða sæti með 33 stig, en Betis í sjöunda sæti með 26 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner