Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 13. janúar 2019 13:02
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Griezmann tryggði sigur gegn Levante
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 1 - 0 Levante
1-0 Antoine Griezmann ('57, víti)

Antoine Griezmann gerði eina mark leiksins er Atletico Madrid lagði Levante að velli í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum.

Griezmann er búinn að skora síðustu sex mörk Atletico í öllum keppnum en í dag skoraði hann úr vítaspyrnu eftir að sending frá Thomas Partey fór í hönd varnarmanns Levante og útaf.

Atletico var við stjórn frá fyrstu mínútu en náði ekki að bæta við mörkum. Sigurinn er mikilvægur í toppbaráttunni þar sem Atletico er núna aðeins tveimur stigum frá toppliði Barcelona, sem á leik til góða gegn Eibar síðar í dag.

Levante er um miðja deild, fjórum stigum frá falli og fimm stigum frá Evrópusæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner