Umboðsskrifstofan Unique Sports Management er að auka umsvif sín talsvert hjá West Ham og hefur það vakið athygli samkeppniseftirlits enska knattspyrnusambandsins.
Fyrirtækið keypti auglýsingar á búningum kvennaliðs West Ham á dögunum og eru minnst fimm leikmenn karlaliðsins með samning við skrifstofuna.
Eigandi skrifstofunnar er Will Salthouse sem er góðvinur David Sullivan, eiganda West Ham, og fjölskyldu hans.
Auk þess að vera með fimm leikmenn aðalliðsins samningsbundna sér hefur Unique Sports Management komið að sex félagaskiptum til eða frá West Ham á síðustu tveimur árum.
Athugasemdir