Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. janúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City reynir að fá þriðju landsliðskonuna frá Bandaríkjunum
Mynd: Getty Images
Manchester City er í viðræðum um að fá bandarísku landsliðskonuna Abby Dahlkemper frá North Carolina Courage í Bandaríkjunum.

Dahlkemper er miðvörður sem var hluti af bandaríska landsliðinu sem vann HM 2019.

Hún er 27 ára gömul og á 62 landsleiki að baki. Hún var eini útileikmaðurinn sem byrjaði alla leikina fyrir Bandaríkin á HM fyrir tveimur árum síðan.

Hún er með samning á borðinu frá Man City sem er eitt af bestu liðum Englands.

Nú fyrir eru tvær bandarískar landsliðskonur hjá Man City; Rose Lavelle og Sam Mewis.
Athugasemdir
banner
banner
banner