þri 13. febrúar 2018 18:06
Elvar Geir Magnússon
Bennell dæmdur sekur fyrir fjölda kynferðisglæpa gegn börnum
Barry Bennell.
Barry Bennell.
Mynd: Samsett
Barry Bennell, 64 ára fyrrum fótboltaþjálfari, hefur verið dæmdur sekur í fjölda kynferðisglæpa gegn ungum drengjum. Brot­in áttu sér stað á ní­unda ára­tugn­um en fórn­ar­lömb Benn­el voru yngri en 16 ára.

Hann starfaði við þjálfun yngri liða Manchester City og Crewe Alexandra.

Háttsettir menn hjá Manchester City og Crewe vissu af kynferðisbrotum Bennell meðan hann starfaði hjá félögunum.

Strákar voru misnotaðir á heimili Bennell en fyrir rétti sögðu fórnarlömb hans að Bennell hefði haft ákveðið vald yfir þeim vegna þeirra drauma um að verða atvinnufótboltamenn.

Chris Unsworth segir að Bennell hafi nauðgað sér um sex sinnum.

Benn­ell kom fyr­ir dóm­ara í gegn­um vef­mynda­vél vegna veikinda sem hann er að glíma við. Hann var dæmdur sekur í 36 ákæruliðum.

Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga breskum strák í fótboltaferð í Flórída 1994 og fékk níu ára dóm 1998 fyrir 23 brot gegn sex strákum. Seint á árinu 2016 reyndi hann að taka eigið líf.
Athugasemdir
banner